Meira vitnað í rannsóknir HR en nokkurs annars háskóla

12.9.2019

HR meðal 350 bestu háskóla í heiminum á lista Times Higher Education og efstur íslenskra háskóla. Á nýjum lista Times Higher Education (THE) yfir bestu háskóla heims, sem birtur var í gær, kemur fram að á mælikvarða sem metur áhrif rannsókna, skorar Háskólinn í Reykjavík hæst, ásamt sex öðrum háskólum.

Áhrifin eru metin út frá hlutfallslegum fjölda tilvitnana í vísindagreinar, það er, hversu oft aðrir vísindamenn vitna í niðurstöður fræðimanna háskólans í ritrýndum vísindagreinum.

HR er meðal bestu 350 háskóla í heiminum á listanum. Í sumar var greint frá því að á lista THE yfir bestu ungu háskóla í heimi, 50 ára og yngri, væri HR í 52. sæti og á lista yfir smærri háskóla, með færri en 5000 nemendur, væri HR í 14. sæti í heiminum.

Starfsfólkið á heiðurinn

Ari Kristinn Jónsson, rektor HR, er að vonum ánægður með nýja listann. „Að HR sé á meðal áhrifamestu rannsóknaháskóla heims miðað við stærð, samkvæmt hinum þekkta lista Times Higher Education, er stórkostlegt. Það sýnir skýrt hversu frábærlega hefur tekist að byggja upp öflugar alþjóðlegar rannsóknir við háskólann á tiltölulega skömmum tíma. Það sýnir líka að sú rannsóknavinna sem fer fram við HR er nýtt um allan heim sem undirstaða frekari rannsókna og þróunar. Starfsfólk HR á allan heiður af þessum stórkostlega árangri og full ástæða til að óska þeim hjartanlega til hamingju.“

Starfsmenn HR skála fyrir góðum niðurstöðum á THE listanumStarfsmenn HR héldu upp á góðar niðurstöður Times Higher Education

Listi THE yfir tilvitnanir byggir á upplýsingum frá Elsevier um rúmlega 77 milljónir tilvitnanir í 13 milljón ritrýndar fræðigreinar, yfirlitsgreinar, bækur, bókakafla og ráðstefnurit, sem gefin hafa verið út síðustu fimm árin. Í einkunnagjöf THE fyrir tilvitnanir er jafnframt tekið tillit til fjölda starfsmanna við háskóla, mismunar á útgáfutíðni milli fræðigreina og fleiri slíkra atriða. Listinn yfir bestu háskólana byggir m.a. á mati á kennslu, rannsóknum, alþjóðastarfi og samstarfi við atvinnulífið.