Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Próf

Reglur um samskipti, skilríki, hjálpargögn o.fl.

Í lokanámsmati á próftímabili gilda ákveðnar reglur um samskipti, skilríki, hjálpargögn, framkvæmd prófs o.fl. Skrifstofa nemendaskrár og námsmats vill sérstaklega vekja athygli nemenda á eftirfarandi: 

  • Prófstofur eru almennt opnaðar 30 mínútum áður en próf hefst. 
  • Nemendur fá úthlutað sæti og skulu þreyta/taka prófið þar. Eftir að nemandi hefur komið inn í prófstofu er honum óheimilt að yfirgefa hana nema með leyfi prófvarðar.  
  • Nemendur skulu framvísa löglegu skilríki með mynd, t.d ökuskírteini eða vegabréfi. 
  • Símar, úr og öll önnur  raftæki skulu geymd í símaboxi á borði nemanda á meðan á próftöku stendur. Slökkva skal á tækjum eða setja þau á flugstillingu. 
  • Öll notkun snjall- og samskiptatækja og öll samskipti við aðra nemendur eða aðila utan prófstofu er óheimil á próftíma.  
  • Merkja skal  öll svarblöð með nafni eða prófnúmeri og óska eftir fleiri svarblöðum hjá prófverði ef þörf er á. 
  • Nemanda er óheimilt að nota önnur hjálpargögn en þau sem kennari hefur sérstaklega heimilað.  
  • Óheimilt er að fjarlægja nokkurn hluta prófgagna úr prófstofu. 
  • Nemanda er óheimilt að fara á salerni eða yfirgefa prófstofu fyrr  en ein klukkustund er liðin af próftíma, nema sérstækar aðstæður séu fyrir hendi og þá aðeins með leyfi prófvarðar.  
  • Rafræn próf eru staðarpróf og skulu tekin í skilgreindri stofu í HR nema fyrirmæli kennara séu önnur.  

Brot á ofangreindu geta varðað brottvísun úr prófi og/eða öðrum viðurlögum samkvæmt reglum HR um nám og námsmat. Nánari upplýsingar um lokanámsmat og framkvæmd þess  er að finna í reglum HR um nám og námsmat.

Skrifstofa nemendaskrár og námsmats fer með framkvæmd lokanámsmats, fyrirspurnir tengdar lokanámsmati má senda á prof@ru.is

Fara efst