Vel heppnuð vinnustofa á vegum MIT ILP í HR
Gagnvirk vinnustofa var haldin í Háskólanum í Reykjavík á vegum MIT ILP nú í mars sem bar yfirskriftina; Making Feedback Work for You: From Awkward to Actionable. Vinnustofan var leidd af þeim Jayne Tan, sem kennir og sérhæfir sig í leiðtogaþjálfun og Melissu Webster, lektor hjá Sloan School of Management við MIT. Þátttakendur í vinnustofunni voru stjórnendur hjá HR, Rarik og JBT Marel ásamt fulltrúum frá KLAK.
Hrafntinna Viktoría Karlsdóttir, verkefnastjóri atvinnulífstengsla, segir vinnustofuna hafa verið vel heppnaða og frábært tækifæri að fá þær Jayne og Melissu hingað til lands. Var þetta samskonar vinnustofa og haldin var fyrir hópinn sem sóttu rannsókna- og þróunarráðstefnu á vegum MIT í Boston í nóvember en þar voru fulltrúar frá HR, Rarik, KLAK og Landsvirkjun.

HR er aðili að MIT ILP (Industrial Liaison Program) en tengsl HR og MIT ná langt aftur. Á grundvelli þessa samstarfs hefur HR heimild til að bjóða völdum, íslenskum fyrirtækjum aukaaðild að MIT ILP og kallast sú aðild lcelandic Innovation Partners (IIP) og gegnir HR þar leiðandi hlutverki. Markmið samstarfsins er að sameina fyrirtæki og stofnanir með áhuga á langtíma stefnumótun og samstarfi við MIT og innbyrðis.
Með samstarfinu býðst starfsfólki fyrirtækja innan IIP einstakt aðgengi að þekkingu innan MIT eins og aðgangi að sérfræðingum, námskeiðum og ráðstefnum. Auk aðgangs að tengslaneti MIT-tengdra sprotafyrirtækja. Helsti kosturinn fyrir fyrirtækin í IIP eru stuttar boðleiðir en aðilar innan þeirra geta óskað eftir fundum við fræðimenn innan MIT með milligöngu HR og þar með er oft lagður grunnur að farsælu samstarfi.
Dagsetning
Deila