Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna

Veðurstofa Íslands auglýsir sumarstarf fyrir nema í veðurfræði, jarðeðlisfræði, eðlisfræði eða sambærilegu námi. 

Starfið felst m.a. í: 

  • Gerð almennra veðurathugana á 3 klst. fresti 
  • Gerð veðurathugana fyrir Reykjavíkurflugvöll (METAR) á klukkustundarfresti eða oftar. METAR veðurathugun er á alþjóðlegu skeytaformi sem notað er í öllu flugi. 
  • Túlkun veðurkorta 
  • Vöktun vatnsrennslis í ám 
  • Lestri veðurfregna í útvarpi 
  • Samskiptum við hagaðila 
  • Önnur tilfallandi verkefni 

Vinnutími: 

  • Starfið er að hluta til vaktavinna 
  • Gera má ráð fyrir vinnu aðra hverja helgi 

Hæfniskröfur: 

  • Nemi í veðurfræði, jarðeðlisfræði, eðlisfræði eða sambærilegu námi 
  • Áhugi á veðurfræði sem framtíðarstarfi 
  • Nákvæmni og ábyrgð 
  • Góð hæfni í samskiptum 
  • Góð kunnátta í íslensku og ensku 

Umsóknarfrestur: 6. febrúar 2026 

Frekari upplýsingar: 

Kristín Hermannsdóttir, Fagstjóri Veðurþjónustu 

Netfang: kristinhe@vedur.is 

Veðurstofa Íslands