Starfsnám hjá forseta EFTA-dómstólsins frá febrúar/mars 2026
Árlega ræður Páll Hreinsson, forseti EFTA-dómstólsins, til sín starfsnema til 3-11 mánaða. Starfsnámið veitir nýútskrifuðum íslenskum lögfræðingum tækifæri til að starfa á sviði EES-réttar hjá dómstólnum.
Starfsnemar fá tækifæri til að taka þátt í verkefnum dómstólsins. Þeir aðstoða aðra lögfræðinga dómstólsins og er markmiðið að þeir öðlist víðtæka þekkingu á skýringu EES-samningsins auk þess að fræðast um starfsemi annarra stofnana EES og ESB.
Starfsnemar hljóta skattfrjálsan mánaðarlegan styrk að fjárhæð 3.400 evrur.
Nú leitar EFTA-dómstóllinn að starfsnema sem gæti hafið störf frá og með 1. mars næstkomandi. Umsóknarfrestur er til og með 15. febrúar.
Tekið er við umsóknum frá lögfræðingum eða laganemum sem eru að leggja lokahönd á meistararitgerð.
Með umsókn skal fylgja starfsferilsskrá, afrit af einkunnum og kynningarbréf á ensku þar sem gerð er grein fyrir ástæðum umsóknar. Æskilegt er að umsækjendur gefi til kynna hversu langt starfsnámstímabil myndi henta þeim.
Umsóknir má senda á netfangið: traineeships@eftacourt.int
Nánari upplýsingar veita Ólafur Ísberg Hannesson (Olafur.Hannesson@eftacourt.int) og Kristján Jónsson (Kristjan.Jonsson@eftacourt.int).
- Vefsíða: EFTA.int
- Umsóknarfrestur (til og með): 02/15/2026
