Vísindafólk og nemendur HR hljóta fjölmarga styrki úr Rannsóknasjóði Rannís 2026
Háskólinn í Reykjavík hefur enn á ný styrkt stöðu sína sem rannsóknaháskóli, en vísindafólk og nemendur við skólann hljóta fjölmarga styrki úr Rannsóknasjóði Rannís fyrir styrkárið 2026. Alls bárust 414 gildar umsóknir í sjóðinn og voru 70 þeirra styrktar, eða 17%.
Heildarstyrkveitingar til nýrra verkefna nema rúmum 1,3 milljörðum króna, og heildarkostnaður verkefna 2026–2028 er metinn tæplega 3,8 milljarðar króna.
Verkefnisstyrkir til HR
- Vala Hjörleifsdóttir, verkfræðideild
SæLjós – hagnýting neðansjávar fjarskiptainnviða til jarðskjálftarannsókna - Sigurður Ingi Erlingsson, verkfræðideild
Samspil seglunar og flutningseiginleika í örvírum úr grannfræðilegum einangrurum - Luca Aceto, Anna Ingólfsdóttir, Elli Anastasiadi, Kim G. Larsen & Martin Zimmermann, tölvunarfræðideild
Yfirrökfræði: tjáningarhæfni, eftirlitshæfni og verkfæri (H.Lo) - Hans Peter Reiser, tölvunarfræðideild
FrostShield – Útskýranleg og sjálfvirk netvörn byggð á persónuverndarvöktun og vélanámi - Yngvi Björnsson, tölvunarfræðideild
Útskýranleg gervigreind og virkt vélnám í upplýstum leitaragentum
Nýdoktorsstyrkur til HR
- Meha Agrawal, verkfræðideild
Hálfgreiningar- og tölvustýrð hönnunaraðferðafræði fyrir geislamyndandi loftnet fyrir ómönnuð loftför
Doktorsnemastyrkir til HR
Fimm doktorsnemar við HR hlutu styrki:
- Gianmarco Dolino, verkfræðideild
METAspine – Sjúklingasértæk gerviefni líkön til að rannsaka meinvörp í hrygg - Sara Camén, verkfræðideild
Áhrif örplasts á orkubúskap við yfirborð jökla - Gabriele Boretti, verkfræðideild
3D Mec (Omic): Líkan til að spá fyrir um myndun 3D lífaprentaðs brjóskvefjar - Ida Maruotto, verkfræðideild
Aldurstengt spálíkan fyrir slitgigt í hné - Aníta Ósk Georgsdóttir, sálfræðideild
Aukin þekking á hugrænni hrörnun með taugasálfræði og vélnámi
Mikilvæg viðurkenning á styrk HR í rannsóknum
Úthlutunin endurspeglar styrk HR á fjölbreyttum rannsóknasviðum — frá gervigreind og netöryggi til líkanagerðar í heilbrigðisvísindum, taugasálfræði og jarðskjálftarannsókna. Háskólinn í Reykjavík óskar öllum styrkþegum innilega til hamingju og hlakkar til að fylgjast með framvindu verkefnanna á næstu árum.
Tilkynningu um úthlutun úr Rannsóknasjóði má sjá hér má nálgast hér.
Dagsetning
Deila