Styrkir úr atvinnulífstengdum sjóðum og nýnemastyrkir
Viðurkenningar til styrkþega úr atvinnulífstengdum sjóðum og nýnemastyrkir, til nemenda sem hafa sýnt framúrskarandi árangur á stúdentsprófi, voru afhentir í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík í gær, fimmtudaginn 27. ágúst.
Dr. Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, flutti ávarp við upphaf athafnar og afhenti nýnemastyrkina ásamt dr. Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur, sviðsforseta samfélagssviðs, og dr. Ólafi Eysteini Sigurjónssyni, sviðsforseta tæknisviðs.
Veittir voru styrkir úr Hvatasjóði Landsbankans og Námssjóði Sameinaðra verktaka. Sigríður Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Landsbankans, afhenti styrki úr Hvatasjóði Landsbankans ásamt Bryndísi og kynnti samstarf bankans og HR í tengslum við Hvatasjóð. Þá afhenti Ragnhildur styrki úr Námssjóði Sameinaðra verktaka ásamt Ólafi Eysteini.
Um sjóðina
Landsbankinn - Hvatasjóður
Háskólinn í Reykjavík í samstarfi við Landsbankann veitir tveimur nemendum styrk sem hafa annað móðurmál en íslensku og náð hafa góðum árangri í framhaldsskóla. Hlutverk sjóðsins er að jafna aðgengi að námi við HR. Við val á styrkhöfum er tekið mið af námsárangri auk fjölbreytileika og þátttöku nemenda á öðrum sviðum, t.d. íþróttum, tómstundastarfi og sjálfboðavinnu. Styrkurinn felur í sér niðurfellingu á skólagjöldum fyrsta árið í grunnnámi.

Námssjóður sameinaðra verktaka
Úr Námssjóði Sameinaðra verktaka eru veittir námsstyrkir sem nema skólagjöldum í eina önn til nemenda í verkfræði, tæknifræði og tölvunarfræði við HR. Styrkirnir eru ætlaðir þeim sem ljúka BSc-gráðu og hyggjast hefja framhaldsnám (MSc eða PhD) í HR eða öðrum háskólum. Nemendur á lokaönn í tæknifræði geta einnig sótt um styrkinn. Umsóknir eru metnar eftir námsárangri umsækjenda, frumkvæði og áræðni, kynningarbréfi og meðmælum. Við mat á umsóknum er einnig litið til þátttöku nemanda í störfum fyrir HR, s.s. félagsstörfum, dæmatímakennslu og kynningarstörfum.

Eftirfarandi nemendur hlutu nýnemastyrk:
| Abdallah Rúnar Awal |
| Adam Leó Tómasson |
| Alexander Klak |
| Ari Frímannsson |
| Árný Eyja Ólafsdóttir |
| Aron Frosti Davíðsson |
| Atli Týr Jacobsen Helgason |
| Benedikt Fazakerley Richardsson |
| Birgitta Rún Yngvadóttir |
| Birkir Blær Gylfason |
| Bjarki Logason |
| Bjartur Snær Eyþórsson |
| Breki Mikael Adamsson |
| Bríana Birta Ásmundsdóttir |
| Daði Fannar Hlífarsson |
| Dagur Örvarsson |
| Daníel Snær Rodriguez |
| Darri Inoson Paalman |
| Duc Minh Tri Vuong |
| Elsa Kristín Arnaldardóttir |
| Elvar Ingi Kristjánsson |
| Erlendur Stefán Gíslason |
| Erpur Þórhallsson |
| Eva Margrét Magnúsdóttir |
| Filip Repic |
| Guðrún Dagbjört Sigurðardóttir |
| Halldóra Rún Gísladóttir |
| Heiðar Bjarki Davíðsson |
| Heiðar Snær Bjarnason |
| Inga Vala Ingvarsdóttir |
| Jakob Fróði Karlsson |
| Karen Þorgrímsdóttir |
| Karolina Staselyte |
| Lilja Rós Gunnarsdóttir |
| Lísa Vilhjálmsdóttir |
| Mikael Nói Richter |
| Ólafur Ragnar Matthíasson |
| Ólöf Rán Unnarsdóttir |
| Pétur Óli Ágústsson |
| Tómas Elí Ólafsson |
| Þórdís Elísabet Arnarsdóttir |
Eftirfarandi nemendur hlutu styrki úr atvinnulífstengdum sjóðum:
| Oliwia Slodkowska |
| Salvador Di Marzio Láruson |
| Björn Leví Ingvarsson |
| Daniel Z. El Deen K. Al Hennaw |
| Einir Sturla Arinbjarnarson |
| Jökull Baldursson |
Dagsetning
Deila