Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
25. ágúst 2026

Nóbelsverðlaunahafi heldur erindi í HR

Viðskiptafræði- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík boðar til ráðstefnunnar Hagfræði og samfélagið í skólanum, í dag, miðvikudaginn 26. ágúst í tilefni þess að áratugur er liðinn frá því að kennsla til BSc-gráðu í hagfræði hófst við HR.

Claudia Goldin, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði 2023 og Samuel W. Morris og Henry Lee prófessor í hagfræði við Harvard-háskóla, verður annar lykilfyrirlesara. Goldin heldur erindi sem mun fjalla um aukið sjálfstæði kvenna og minnkandi fæðingartíðni. Erindi hennar hefst kl. 13:00.

Claudia Goldin.

Hinn lykilfyrirlesarinn, Lawrence F. Katz, Elisabeth Allison prófessor í hagfræði við Harvard-háskóla, mun í erindi sínu fjalla um uppbyggingu hverfa með sterka framtíðarmöguleika. Erindi Katz hefst kl. 10:45.

Lawrence F. Katz.

Pallborðsumræður eftir flutning erinda

Eftir að Goldin og Katz hafa flutt erindi sín fara fram pallborðsumræður sem Katrín Ólafsdóttir, dósent við viðskipta- og hagfræðideild HR, stýrir. Í pallborði verða þau Goldin og Katz ásamt Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, fyrrverandi forstöðumanni Lýðræðis- og mannréttindastofnunar (Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu), utanríkisráðherra og borgarstjóra, Sonju Ýr Þorbergsdóttur, lögfræðingi og formanni stéttarfélagasamtakanna BSRB, og Gylfa Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.

Ráðstefnan fer fram í stofu V101 í HR frá kl. 10:00 til kl. 17:00. Ókeypis er á ráðstefnuna en nauðsynlegt er að skrá sig á hana vegna takmarkaðs sætaframboðs. Nánari upplýsingar um Hagfræði og samfélagið og dagskrá viðburðarins er að finna hér.

25. ágúst 2026
Nýjustu fréttirnar