Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
27. ágúst 2026

Nemendur á forsetalista tóku á móti viðurkenningum í Sólinni

Forsetastyrkir voru afhentir í gær, miðvikudaginn 26. ágúst, á forsetalistaathöfn Háskólans í Reykjavík.  Nemendurnir sem eru 55 að þessu sinni, tóku á móti viðurkenningum sínum við hátíðlega athöfn í Sólinni.

Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, flutti ávarp við athöfnina. Nýafstaðið Reykjavíkurmaraþon var henni ofarlega í huga en hún talaði um mikilvægi þess að halda áfram þó áföngum á leiðinni sé náð:

Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR.

„Hafið þetta í huga kæru nemendur EN munið líka að líkingunni lýkur ekki þarna.  Í þessu langhlaupi þarf maður nefnilega  (alveg eins og í maraþoni) að hlaupa sitt eigið hlaup, miðað við getu og áhuga og stilla það af eftir því sem manni hentar. Það er allt í lagi og alveg jafn mikilvægt og þess virði að horfa í kringum sig á leiðinni, gefa sér góðan tíma, spyrja gagnrýnna spurninga, gleyma samanburðinum við næsta mann, meðtaka umhverfið og breytingar þær sem þið sjáið á leiðinni, allt til að fá sem mest út úr vegferðinni.“

Ræðu Ragnhildar má nálgast hér.

Rakel Björgvinsdóttir, nemandi í sálfræðideild.

Rakel Björgvinsdóttir, nemandi í sálfræðideild, flutti ávarp fyrir hönd nemenda. Hún ræddi um mikilvægi þess fyrir þau sem eru vön að setja sér háleit markmið í náminu að passa að  lífið verði ekki eitt stórt verkefni þar sem reynt sé sífellt að fá hæstu einkunn í:

„Kannski er árangur ekki alltaf fólginn í því að gera meira. Kannski er árangur stundum fólginn í því að kunna að stoppa. Að taka sér frí án þess að finnast maður eiga það ekki skilið. Að eyða tíma í það sem nærir mann og með fólkinu sem skiptir mann máli án þess að hugsa um næsta verkefni. Að leyfa sér að mistakast. Við megum ekki gleyma að lífið byrjar ekki þegar náminu lýkur eða þegar við höfum náð markmiðunum okkar. Lífið er að gerast núna og við erum hér til að upplifa það.“

Forsetastyrkir eru veittir nemendum sem ná bestum árangri á hverri önn og fá þeir þannig skólagjöld næstu annar niðurfelld. Til þess að vera gjaldgengir á forsetalista þurfa nemendur að ljúka að minnsta kosti 30 einingum á önn.

Forsetalistann fyrir haustið 2026 má sjá hér.

27. ágúst 2026
Nýjustu fréttirnar