Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
29. september 2026

Melange er nýtt sprotafyrirtæki HR

Hugo Félicien Thomas Cazaux, sérfræðingur við verkfræðideild Háskólans í Reykjavík, hefur ásamt Thibault Davaine, sérfræðingi í gagnalausnum, stofnað fyrirtækið Melange í samstarfi við HR.

Markmið Melange er að bjóða fyrirtækjum upp á spáþjónustu og ráðgjöf sem byggir á gögnum og gervigreind. Fyrirtækið þróar hugbúnaðarlausn sem umbreytir rekstrargögnum í hagnýtar spár, bætir upp skort á gögnum og greinir frávik, án þess að viðskiptavinir þurfi sérhæfða þekkingu á spágerð.

Lausnin byggir á eigin grunnlíkani Melange fyrir tímaraðir sem er aðlagað að gögnum hvers viðskiptavinar og endurþjálfað eftir því sem aðstæður breytast. Hana má annaðhvort bjóða sem hýsta þjónustu eða keyra alfarið á innviðum viðskiptavinarins, með það fyrir augum að viðkvæm gögn fari ekki út fyrir kerfi hans.

Thibault Davaine og Hugo Cazaux.

„Þátttaka Háskólans í Reykjavík hefur skipt sköpum fyrir Melange. Í gegnum frumkvöðlaáætlunina getum við náð til samstarfsaðila úr atvinnulífinu og nýtt okkur aðstoð rannsóknaþjónustunnar við að finna viðskiptavini og tækifæri til styrkja,“ segir Hugo, annar stofnenda Melange, en sprotastefna skólans miðar að því að styðja við og fjölga sprotafyrirtækjum sem verða til innan háskólans.

Melange mun í fyrstu beina starfsemi sinni að íslenskum fyrirtækjum og rekstraraðilum á sviði orku, innviða og iðnaðar. Hugo segir að með stofnun Melange muni tengsl rannsókna, nýsköpunar og atvinnulífs styrkjast og ný tækifæri til þróunar og samstarfs skapast.

29. september 2026
Nýjustu fréttirnar