Kraftur kvenna er ný fyrirlestraröð í HR
Háskólinn í Reykjavík mun á fimmtudaginn 20. ágúst bjóða til málstofu þar sem ný fyrirlestraröð um næringu og lífeðlisfræði kvenna í íþróttum og hreyfingu, Kraftur kvenna (e. Fuelling Females), verður formlega kynnt. Málstofan er í samstarfi við ÍSÍ og UMFÍ og fer fram í stofu V101 frá kl. 16:00 til 17:30.
Nánari upplýsingar um viðburðinn er að finna hér og skráning fer fram hér. Boðið verður upp á léttar veitingar að málstofunni lokinni og er skráning því nauðsynleg.
Markmið verkefnisins er að efla konur í hreyfingu og íþróttum með því að miðla gagnreyndri og hagnýtri þekkingu um næringu, heilsu og lífeðlisfræði kvenna.
Dr. Christopher Curtis, íþróttanæringarfræðingur og dósent við íþróttafræðideild HR, hefur málstofuna á því að halda fræðsluerindi um næringu íþróttakvenna.
Áhersla lögð á reynslu kvenna
„Rannsóknir mínar á íþróttakonum hófust þegar ég starfaði sem íþróttanæringarfræðingur hjá kvennaíþróttaliði í Bretlandi. Við áttuðum okkur fljótlega á því að mikið af þeim ráðleggingum sem við studdumst við byggja á rannsóknum á karlmönnum. Þess vegna vildum við svara spurningum um hvað íþróttakonurnar okkar væru í raun og veru að gera og hvað við þyrftum að vita til að bæta frammistöðu þeirra,“ segir Curtis.

Silja Úlfarsdóttir, fyrrverandi afreksíþróttakona og þjálfari, stýrir svo pallborðsumræðum þar sem reynsla kvenna úr afreksíþróttum, næringarfræði, þjálfun og almennri heilsurækt verður í forgrunni.
Í pallborðinu sitja Sara Sigmundsdóttir, atvinnukona í CrossFit, Eygló Fanndal Sturludóttir, Evrópumeistari í ólympískum lyftingum og íþróttamaður ársins 2025, Ágústa Edda Björnsdóttir, margfaldur Íslandsmeistari í hjólreiðum, Agnes Þóra Árnadóttir, fyrrverandi knattspyrnukona og næringarfræðingur, og Erla Guðmundsdóttir, íþróttafræðingur, heilsumarkþjálfi og stjórnandi hlaðvarpsins Með lífið í lúkunum.

Getur haft margvíslegar afleiðingar
Dr. Hafrún Kristjánsdóttir, prófessor og deildarforseti íþróttafræðideildar HR, segir fræðslu ekki vera það sama og fræðslu þegar kemur að næringu kvenna í íþróttum: „ Það er gríðarlega mikið til af „fræðslu“ um næringu kvenna í íþróttum og hreyfingu á internetinu. Vandinn er að þar er líka mikið af mýtum og fullyrðingum sem eiga sér litla eða enga stoð í vísindum. Það er hins vegar mun minna af aðgengilegu fræðsluefni sem byggir á traustri vísindalegri þekkingu.
Það að næra sig ekki nægilega vel getur haft margvíslegar líkamlegar og sálrænar afleiðingar. Það getur til dæmis aukið líkur á meiðslum, haft áhrif á hormónastarfsemi og truflað tíðahringinn. Við vitum líka, meðal annars út frá rannsóknum sem við höfum gert hér á Íslandi, að alltof margar íþróttakonur eiga í óheilbrigðu sambandi við mat,“ segir Hafrún. Hún vonast til þess að sem flestir geti nýtt sér það efni sem kemur fram á fyrirlestraröðinni.

„Við yrðum himinlifandi ef þessi fræðsla yrði nýtt af sérsamböndum, íþróttafélögum, þjálfurum, líkamsræktarstöðvum, kennurum, foreldrum og öðrum sem koma að íþróttum og hreyfingu til að fræða stúlkur og konur á öllum aldri um næringu og mikilvægi hennar.
Efnið er öllum að kostnaðarlausu og fólk getur treyst því að það byggi á bestu vísindalegu þekkingu sem völ er á í dag. Eitt af hlutverkum háskóla er að miðla þekkingu út í samfélagið og þetta er okkar leið til að leggja okkar af mörkum.“
Dagsetning
Deila