Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
13. október 2026

Íslenska liðið Cybotrix í lokakeppni Nordic AI Cup

Lið Cybotrix stóð uppi sem sigurvegari í íslenska hluta gervigreindarkeppninnar Nordic AI Cup. Keppnin, sem fór fram á netinu 17. – 20. september sl. fer fram samtímis á öllum Norðurlöndunum og er á vegum Gervigreindarseturs HR (CADIA) og Kveikju.

Í síðustu viku var tekið á móti hópnum í Háskólanum í Reykjavík þar sem CADIA og Kveikja afhentu liðinu sigurlaunin fyrir árangurinn; 500 þúsund króna verðlaunafé.

Lið Cybotrix er skipað þeim Adetayo Adebimpe, gervigreindarsérfræðingi hjá Íslandsbanka, og Defend Iceland og stofnanda vegalingo.is,  Adenike Adebimpe, BA-nema í alþjóðlegu námi í menntunarfræði við HÍ, Quadri Abiodun Busari, meistaranema í alþjóðlegu námi í menntunarfræði við HÍ, og Tolulope Iyanuoluwa Oni, meistaranema í alþjóðasamskiptum við HÍ.

Adetayo Adebimpe, Adenike Adebimpe, Quadri Abiodun Busari og Tolulope Iyanuoluwa Oni mynda lið Cybotrix.

Lokaviðureignin 14. október nk.

Nordic AI Cup er skipulögð af Ambolt AI, sem annaðist allan undirbúning og hönnun verkefnanna í keppninni í samstarfi við the Nordic AI Partnership.

Með sigrinum hér á landi hefur Cybotrix tryggt sér sæti í sjálfri lokakeppninni, þar sem liðið tekur slaginn við fulltrúa hinna Norðurlandanna um titilinn norðurlandameistari í gervigreind.

Lokaviðureignin fer fram á morgun, miðvikudaginn 14. október á Nordic AI Meet, sem er árleg ráðstefna ætluð ungum rannsakendum og framtíðarleiðtogum á sviði gervigreindar.

13. október 2026
Nýjustu fréttirnar