Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
18. ágúst 2026

Heilbrigðistæknisetur HR vann til verðlauna á Ítalíu

Heilbrigðistæknisetur Háskólans í Reykjavík (IBNE) vann til verðlauna fyrir bestu fræðigreinina á hinni alþjóðlegu ráðstefnu eXtended Reality (XR Salento) í Otranto á Ítalíu fyrr í sumar.

Damiano Coato, Gianmarco Dolino, Riccardo Forni, Arnar Evgení Gunnarsson, Halldór Jónsson Jr. og Paolo Gargiulo eru höfundar fræðigreinarinnar Radio-Anatomical Interactive Library: A RAILway Into The Future Of Digital Education.

Paolo, sem er prófessor við verkfræðideild HR og forstöðumaður IBNE, greinir frá því á LinkedIn aðgangi sínum að í fræðigreininni kynni þeir nýstárlegar aðferðir við stafræna líffærafræði og læknisfræðikennslu og sýni fram á möguleika gagnvirkra þrívíðra líffærasafna í heilbrigðisþjálfun og rannsóknum.

Damiano Coato kynnir niðurstöður greinarinnar á ráðstefnunni.

„Þessi verðlaun undirstrika öflugt þverfaglegt samstarf og skuldbindingu okkar til að efla stafræna heilbrigðisþjónustu, læknisfræðikennslu og gagnvirka tækni. Innilegar hamingjuóskir til teymisins með þennan frábæra árangur og fyrir að vera fulltrúar IBNE og Háskólans í Reykjavík á alþjóðavettvangi,“ skrifar Paolo.

18. ágúst 2026
Nýjustu fréttirnar