Borgarlínuframkvæmdir við HR hafnar
Uppbygging innviða fyrir Borgarlínu við Nauthólsveg og Háskólann í Reykjavík hófst í morgun. Áætluð verklok eru í júlí 2028. Verkið er hluti af fyrstu lotu Borgarlínu.
Framkvæmdin felur í sér að sérrými fyrir almenningssamgöngur verður komið fyrir í miðju götuþversniði, aðskilið frá akreinum fyrir almenna umferð með umferðareyjum. Þá verða gerðir hjóla- og göngustígar beggja vegna götunnar.
Áhersla er lögð á að lágmarka áhrif framkvæmda á umferð allra samgöngumáta.
HR á í stöðugu samtali við alla fagaðila um aðlögun Borgarlínu að stúdentaíbúðum háskólans og öllum lóðum hans við Nauthólsveg, Menntaveg og Menntasveig. Allar mikilvægar upplýsingar um þróun verksins munu birtast á upplýsingasíðu HR um Borgarlínuframkvæmdir.
Áhrif á aðgengi
Aðgengi fyrir ökutæki, hjólreiðamenn, gangandi vegfarendur og almenningssamgöngur verður viðhaldið allan framkvæmdatímann með hjáleiðum.
Ein akrein í hvora átt verður opin allan verktímann. Tengingar verða gerðar við stíga í Öskjuhlíð og Strætó-stoppistöðvar verða opnar allan verktímann en verða færðar til eftir því sem framkvæmdum miðar áfram.
„Með tilkomu Borgarlínu og nýrrar brúar yfir Fossvog munu samgöngur og aðgengi að Háskólanum í Reykjavík batna til muna. Þessir nýju innviðir styðja dyggilega við fjölbreytta og vistvæna ferðamáta nemenda og starfsfólks, samhliða því að efla tengsl við nágrannasveitarfélögin.
Háskólasvæði HR verður hjarta fyrsta áfanga Borgarlínunnar, sem rennir styrkum stoðum undir áframhaldandi uppbyggingu skólans og nærumhverfis hans,“ segir Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík.
Dagsetning
Deila