Borgarlínuframkvæmdir í kringum HR
Betri samgöngur, í samstarfi við Reykjavíkurborg og Veitur, munu í ágúst hefja framkvæmdir við uppbyggingu innviða fyrir Borgarlínu við Nauthólsveg og Háskólann í Reykjavík. Sérrými fyrir almenningssamgöngur verður komið fyrir í miðju götuþversniði, aðskilið frá akreinum fyrir almenna umferð með umferðareyjum. Þá verða gerðir hjóla- og göngustígar beggja vegna götunnar.
Núverandi hringtorgi á gatnamótum Nauthólsvegar og Menntavegar verður breytt í ljósastýrð gatnamót. Vestan Háskólans í Reykjavík verður byggð ný Borgarlínustöð. Ný aðkoma verður gerð að aðalinngangi HR og ný aðkomugata gerð að Landhelgisgæslunni.
Áætluð verklok eru í júlí 2028.

Aðgengi tryggt á framkvæmdatíma
Aðgengi fyrir akandi, hjólandi, gangandi og almenningssamgöngur verður tryggt allan framkvæmdatímann með hjáleiðum. Ein bílaakrein í hvora átt verður opin eins og verið hefur. Tengingar verða gerðar við stígana í Öskjuhlíð og stoppistöðvar Strætó verða opnar allan tímann en færðar eftir framvindu verksins. Áhrifum á bílastæði verður haldið í lágmarki.
Sérstök framkvæmdasíða er á vef Borgarlínu þar sem allar helstu upplýsingar um verkefnið er að finna: borgarlinan.is/nautholsvegur-hr

Að sögn framkvæmdaaðila verður allt kapp lagt á að hagaðilar eins og HR og íbúar á svæðinu verði fyrir sem minnstum óþægindum á framkvæmdatíma en álag fylgir því að vera nálægt framkvæmdasvæði.
Áhrif framkvæmda við HR á aðgengi og bílastæði
- Aðgengi óskert og engin áhrif á bílastæði við HR í 1. áfanga framkvæmda.
- Ein bílaakrein í hvora átt opin allan framkvæmdatímann. 1+1 eins og verið hefur.
- Tengingar við stígana í Öskjuhlíð.
- Stoppistöðvar Strætó eru opnar allan framkvæmdatímann en eru færðar til eftir framvindu verksins.

Fyrirspurnir og ábendingar:
Hægt er að hafa samband með tölvupósti á netföngin borgarlinan@borgarlinan.is og upplysingar@reykjavik.is og í síma 411 1111.
Dagsetning
Deila