Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
14. ágúst 2026

Anna Sigríður Islind skipuð í stjórn Landspítala

Anna Sigríður Islind, doktor í tölvunarfræði og prófessor við tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík, hefur verið skipuð í stjórn Landspítala til næstu tveggja ára.

Í tilkynningu heilbrigðisráðuneytisins er haft eftir Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra að með skipun nýrrar stjórnar fáist mikilvæg tenging við HR og aðrar stofnanir.

Anna Sigríður hefur starfað við HR frá 2018. Hún er sérfræðingur í hönnun, þróun og notkun stafrænna heilbrigðistæknilausna og gervigreindar í heilbrigðisþjónustu. Anna Sigríður segir það gríðarlegan heiður að fá að taka þátt í mikilvægu starfi Landspítala með stjórnarsetu sinni og er þakklát fyrir það traust sem henni er sýnt með skipun í stjórn.

Anna Sigríður er afkastamikil vísindakona, hefur stjórnað eða komið að stórum rannsóknum á sínu sviði og birt tæplega 150 ritrýndar vísindagreinar og starfað við rannsóknir og kennslu síðan 2011, fyrst í Svíþjóð og svo í HR.

„Samstarf hennar við heilbrigðisgeirann hefur haft viðamikil áhrif jafnt innan sem utan Háskólans í Reykjavík, m.a. með nýju sérnámi fyrir heilbrigðisstarfsfólk á Landspítalanum þar sem gervigreind og heilbrigðisvísindi mætast,“ segir meðal annars í tilkynningu ráðuneytisins.

14. ágúst 2026
Nýjustu fréttirnar