Alþjóðadagurinn í HR á morgun
Alþjóðadagurinn verður haldinn hátíðlegur í Sólinni í HR á morgun, fimmtudaginn 3. september frá klukkan 11:00 til 13:00.
Á Alþjóðadeginum gefst gestum og gangandi tækifæri til að kynnast alþjóðlegu starfi skólans, efla tengsl við samstarfsaðila og fá innsýn í þau fjölbreyttu tækifæri sem alþjóðasamstarf býður upp á. Kynningar munu fara fram á skiptinámi, framhaldsnámi erlendis, styrkjum og öðrum alþjóðlegum tækifærum.
Dagskrá:
- Erlendir nemendur í HR bjóða upp á rétti frá heimalöndum sínum og segja einnig frá skólum sínum sem eru samstarfsskólar HR. Hér gefst kjörið tækifæri til að kynnast fjölbreyttum hópi erlendra nemenda við HR.
- Alþjóðasvið veitir upplýsingar um skiptinám, starfsnám og styrki.
- HR nemendur sem hafa farið í skiptinám eru til viðtals um reynslu sína.
- Verkefnastjórar skiptináms verða til viðtals ásamt mentorum.

Eftirfarandi aðilar verða á staðnum og kynna áhugaverð tækifæri:
Fulbright stofnunin og EducationUSA
Háskólinn í Reykjavík – NeurotechEU
Konfúsíusarstofnunin Norðurljós
Norska sendiráðið á Íslandi
Norræna félagið & Nordjobb
Rannsóknamiðstöð Íslands – Rannís
Sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi
Sendiráð Bretlands á Íslandi
Sendiráð Danmerkur á Íslandi
Sendiráð Frakklands á Íslandi
Sendiráð Indlands á Íslandi
Sendiráð Japans á Íslandi
Sendiráð Kanada á Íslandi
Sendiráð Póllands á Íslandi
Sendiráð Þýskalands á Íslandi
Sendiráð Svíþjóðar á Íslandi
Sendiskrifstofa Færeyja á Íslandi
Snorri West Program
Háskóladansinn
Dagsetning
Deila