Rektor Háskólans í Reykjavík
Dr. Ragnhildur Helgadóttir
Velkomin/n/ð á vef Háskólans í Reykjavík og á þessa undirsíðu mína sem rektors HR. Hér á vef HR finnurðu allar helstu upplýsingar um skólann, hvort sem þær snúa að því námi sem við bjóðum, þeim rannsóknum sem vísindamenn okkar stunda, aðstöðunni eða alþjóðlegu samstarfi.

HR var stofnaður árið 1998. Hann er því ungur háskóli miðað við marga aðra en hefur á stuttum tíma náð að skapa sér mikla sérstöðu. HR er tækniháskóli, HR er háskóli atvinnulífsins, HR styður við nýsköpun og HR er alþjóðlegur háskóli þar sem stundaðar eru rannsóknir á heimsmælikvarða og HR er nemendamiðaður háskóli.
Sérstaða HR birtist meðal annars í þeirri skýru framtíðarsýn að við ætlum að undirbúa samfélagið fyrir framtíðina með því að bjóða frábært nám, praktískt og akademískt, og skapa þekkingu sem breytir heiminum, standandi öðrum fætinum í alþjóðlegu vísindasamstarfi og hinum í íslensku samfélagi og atvinnulífi. Sú blanda skiptir máli, sérstaðan skiptir máli og það skiptir máli að standa vörð um valfrelsi nemenda og að íslenskt háskóla- og vísindastarf sé margradda.

Ég er skólakona af ástríðu og ég er lögfræðingur af ástríðu. Mér þykja það algjör forréttindi að vinna í skóla sem leggur mikið upp úr því að mæta hverjum og einum nemanda þar sem hann er og veita persónulega og góða þjónustu – en gefa á sama tíma engan afslátt af þeim kröfum sem háskólanám leggur á herðar þeirra sem það stunda og þar sem sköpunarkraftur og vísindaleg vinnubrögð eru í forgrunni.
„Menntun á ekki að vera þannig að þú farir inn á einum enda og spýtist svo fullmótuð eða mótaður út á öðrum enda. Það hentar sumum, en kannski fæstum! Ef vel á að vera fer fólk í og úr mismunandi námi, þjálfun og námskeiðum eftir því sem þarfir og langanir þess - og samfélagsins í kringum það - breytast. Í samfélagi sem er svo lítið að við verðum að nýta hæfileika okkar allra, skiptir máli að námsmat þegar þú ert 12, 15 eða 18 ára og dómgreind þín á sama aldri - ráði ekki ferðinni allt lífið, heldur sé hægt að velja, endurskoða, bæta við, skipta og endurskoða aftur hvaða menntun maður þarf“
Dr. Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR
Ég vona að þú finnir það sem þú leitar að hér á vefnum en ef ekki skaltu ekki hika við að hafa samband við okkur í síma 599-6200, í gegnum netfangið ru@ru.is eða í gegnum samfélagsmiðla skólans.
Við erum á:
Stjórn Háskólans í Reykjavík ræður rektor Háskólans í Reykjavík til fjögurra ára í senn. Rektor HR kemur fram fyrir hönd háskólans, annast daglegan rekstur og ber ábyrgð á rekstrinum gagnvart stjórn. Rektor ber ábyrgð á gæðum starfsemi HR og framkvæmd innra mats.
Rektor ræður sviðsforseta, framkvæmdastjóra og aðra starfsmenn háskólans sem heyra beint undir rektor, en hann hefur samráð við stjórn um val þeirra og meginverkefni. Rektor skal halda starfsmannafundi að minnsta kosti einu sinni á önn þar sem starfsfólk er upplýst um stöðu skólans, stefnu og áherslur rektors og stjórnar skólans.

Dr. Ragnhildur Helgadóttir
er rektor Háskólans í Reykjavík. Hún lauk cand. jur.-prófi frá Háskóla Íslands árið 1997 og LL.M-prófi frá Virginíu-háskóla í Bandaríkjunum árið 1999. Þá lauk hún doktorsprófi, einnig frá Virginíu-háskóla, árið 2004 en doktorsritgerð Ragnhildar heitir ‘Not so in North America’ - the Influence of American Theories on Judicial Review in Nordic Constitutional Law.
Ragnhildur hóf að kenna við Háskólann í Reykjavík árið 2002. Hún varð prófessor við lagadeild árið 2006, var deildarforseti lagadeildar 2014-2019 og forseti samfélagssviðs HR 2019-2021. Fræðileg sérsvið Ragnhildar eru stjórnskipunarréttur, almannatryggingaréttur, stjórnsýsluréttur, réttarsaga og mannréttindi. Ragnhildur var í sex ár formaður vísindanefndar Vísinda- og tækniráðs og hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum. Hún hefur kennt við háskóla í Montreal, Ottawa, París og Toulouse.
- Ávarp rektors á forsetalistaathöfn í Sólinni - 26. ágúst 2026
- Ávarp rektors á ráðstefnu viðskipta- og hagfræðideildar í tilefni þess að áratugur er frá því að kennsla til BSc gráðu í hagfræði hófst við HR - 26. ágúst 2026
- Ávarp rektors við brautskráningu Háskólans í Reykjavík 20 júní 2026
- Opnunarávarp rektors - "Lög & tækni, bilið brúað" - 6. maí 2026
- Ræða rektors á forsetalistaathöfn Háskólans í Reykjavík 3. febrúar 2026
- Ávarp rektors við brautskráningu þann 31. janúar 2026 í Hörpu
- Ræða rektors við brautskráningu Háskólans í Reykjavík 25. október 2025
- Ræða rektors á Lagadeginum 10. október 2025
- Ræða rektors á forsetalistaathöfn Háskólans í Reykjavík 10. september 2025
- Ræða rektors við útskrift frá Háskólanum í Reykjavík, 21. júní 2025
- Ræða rektors á forsetalistaathöfn Háskólans í Reykjavík, 19. febrúar 2025
- Ræða rektors við brautskráningu útskrift frá Háskólanum í Reykjavík, 1. febrúar 2025
- Ræða rektors við brautskráningu frá Háskólanum í Reykjavík, 26. október 2024
- Ræða rektors í Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn þann 9. október 2024
- Ræða rektors við brautskráningu frá Háskólanum í Reykjavík, 22. júní 2024
- Forseti – til hvers? Erindi Ragnhildar Helgadóttur, prófessors við lagadeild og rektors Háskólans í Reykjavík, hjá Sagnfræðingafélaginu 21. maí 2024
Fréttabréf rektors
Hér mun ég, a.m.k. mánaðarlega, deila með starfsfólki og öðrum sem hafa áhuga helstu fréttum og áherslum í starfi Háskólans í Reykjavík. Markmiðið er að efla gagnsæi og samtal um það sem skiptir okkur máli. Endilega hafið samband við rektor @ ru.is ef þið hafið spurningar eða athugasemdir um eitthvað sem hér er.
Hlýjar kveðjur,
Ragnhildur
2026
Þá er september liðinn með fallegu haustveðri og annasömum og nokkrum óvenjulegum vinnudögum sem fólust meðal annars í kajakróðri, rýmingaræfingu og einhverju flakki til útlanda að funda! Hér kemur annars það helsta frá störfum rektors:
- Nú í lok september fór fram fundur hjá NUS, norrænu háskólasamtökunum, í Brussel. Í sömu ferð skrifuðum við Silja Bára Ómarsdóttir, rektor HÍ, undir samstarfssamning á milli skólanna tveggja um opnun háskólaskrifstofu í Brussel. Meðal helstu verkefna skrifstofunnar verða að auka sýnileika skólanna á alþjóðavettvangi og bæta aðstöðu skólanna til að sækja fé í styrkjakerfi Evrópusambandsins til rannsókna og nýsköpunar. Hulda Proppé, sem verður starfsmaður skrifstofunnar, mun fá HR netfang, vinna með rannsóknaþjónustu okkar og kynna starfið þegar kemur lengra inn í veturinn.
- Árlegur fundur allra rektora og stjórnar Gæðamats háskóla á Íslandi fór fram á Akureyri í byrjun september. Meðal fundarefna var matsferill og þættir sem hafa tekið breytingum.
- Á Akureyri var einnig blásið til fundar í samstarfsnefnd háskólastigsins þar sem til umræðu var háskólastefna, fjármál og fjármögnun háskólanna og möguleika á auknu samstarfi.
- Flutti ávarp á Vaxtasprotanum 2026 en tölvuleikjafyrirtækið 1939 Games varð fyrir valinu í ár. Verðlaunaafhendingin fór fram í Flórunni í Grasagarðinum og er þetta í 20. sinn sem Vaxtarsprotinn er afhentur.
- Rýmingaræfing fór fram um miðjan september. Æfingar eru til þess að allt gangi smurt ef á þarf að halda og það er ómetanlegt að ná að hafa þær. Þakkir til þeirra sem skipulögðu æfinguna.
- Við Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR skrifuðum undir samning er varðar styrkveitingu HR til SFHR. Markmiðið er að styðja við og efla enn frekar starfsemi SFHR. Við erum í fyrsta sinn að gera ótímabundinn samning til að ýta enn frekar undir frábært samstarf HR og SFHR og eins og ég sagði við undirritunina þá er vert að þakka þessari og fyrri stjórnum SFHR fyrir samstarfið og fyrir allan tímann sem þau í SFHR leggja í að gera skólann okkar allra enn betri.
- Við Bryndís Björk fylgdum nemendunum Ými Chatenay Sölvasyni og Veigari Hrafni Sigþórssyni yfir Fossvoginn á leið í skólann einn morguninn, þeir syntu og við Bryndís rérum á kajökum. Þetta var í tilefni af góðgerðarviku SFHR þar sem allur ágóðinn af áheitum vikunnar rennur óskertur til Píeta samtakanna, sem sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða. Þetta gekk sem betur fer mjög vel og veðrið var frábært!
- Fundur með Hildi Björnsdóttur, borgarstjóra Reykjavíkur um lóðamál og uppbyggingu í grennd við HR.
- Við tókum á móti Bjarna Benediktssyni, framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins, og öðrum fulltrúum frá SA í heimsókn til okkar í HR, röltum um húsið og spjölluðum síðan saman um málefni HR yfir hádegisverði.
- Fyrsti stjórnarfundur skólaársins var fremur hefðbundinn þar sem meðal annars var farið yfir fjármögnun og fjárlög, áhættumat, tölvuöryggi, árshlutareikninga og ýmis önnur mál.
- Sótti móttöku á Bessastöðum vegna nýrra sendiherra.
- Innanhússfundir vegna áætlanagerðar, gæðamála og áhættumats.
- Vinnufundur hjá gæðaráði HR.
- Framkvæmdaráðsfundir voru tveir þar sem ýmislegt var til umræðu og framgangsnefndir samþykktar. Fundargerðir er að finna á Orion.
- Vinnudagur stjórnenda HR um fjármál og húsnæðismál gekk vel og var gagnlegur.
- Skrifaði undir samning fyrir hönd HR við ÍSÍ þegar kemur að stuðningi við afreksfólk í námi hjá okkur. Við höfum verið með afrekshóp í HR um árabil sem er mjög mikilvægt úrræði fyrir afreksíþróttafólk sem stundar háskólanám og íþróttaiðkun á afreksstigi.
- Hádegisverðarfundur rektors og SFHR.
- Á starfsmannafundi fengum við kynningu frá Erlu Jónu Einarsdóttur gæðastjóra á gæðahandbók og síðan ræddum við aðeins um gervigreind í kennslu.
- Fundur hjá stýrihóp NTEU.
- Fundur með arkitektum um nýbyggingu HR. Virkilega spennandi framtíðaráform sem ég hlakka til að sjá verða að veruleika.
- Kynning á niðurstöðum stýrihóps um innleiðingu raunfærnimats á háskólastigi.
- Fundur um nýja deild, framtíðarsýn og þróun.
Þá er það helsta komið fyrir september. Við höldum hress og full orku inn í veturinn sem er handan við hornið!
Hlýjar kveðjur,
Ragnhildur.
2025
Dagskrá rektors
2026
Vikan 5.-9. október
- Fyrri hluta vikunnar var ég í fríi en Bryndís Björk Ásgeirsdóttir og Ólafur Eysteinn Sigurjónsson aðstoðarrektorar leystu mig af;
- Bryndís hélt opnunarræðu við opnun á háskólaklíníkinni og nýju aðstöðunni fyrir nemendaþjónustu
- Þau tóku á móti fulltrúum úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins í tilefni kjördæmaviku
- Þau tóku einnig á móti rektor og öðrum fulltrúum frá The University of New England í Maine fór á fund með háskólaráðuneytinu um AI
- Þau tóku á móti starfsfólki menntamálaráðuneytis vegna undirbúnings HR á námi í kennslufræði STEM greina
- Þegar heim var komið hitti ég rektor University of New England
- Undirbúningsfundur fyrir vinnufund stjórnar
- Vinnufundur stjórnar var hálfs dags fundur föstudaginn 9.10.
- Fundur með fulltrúa stjórnar