Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
1. september 2026

Vísindaferð til Ísafjarðar: „Mikil eftirspurn eftir fólki í háskóla og mikil samkeppni“ 

Hópur nemenda úr Háskólanum í Reykjavík hélt til Ísafjarðar síðastliðinn föstudag í vísindaferð í boði Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS). Hópurinn fékk meðal annars kynningu á starfsemi Háafells, Kerecis og Arctic Fish.  

Ferðin var skipulögð í tengslum við hugmyndasamkeppnina Vitann, samstarfsverkefni HR og SFS sem hefur verið haldin árlega síðan 2015. Keppnin er opin öllum nemendum HR, þvert á deildir í grunnnámi og meistaranámi.

Ferðin var vel heppnuð og þátttakendur í henni voru áhugasamir um fyrirtækin og þær kynningar sem í boði voru.

Karítas Líf Ríkarðsdóttir, nemandi í hátæknifræði: 

„Við fórum í mjög áhugaverð fyrirtæki og það sem mér fannst standa mest upp úr var að læra alls konar um bæði sjóeldi og framleiðsluna. Persónulega vissi ég ekki hvernig þetta var í raun og veru og hvaða þróun er búin að eiga sér stað. Mér fannst áhugaverðast að sjá það.“

Ingólfur Ísak Kristinsson, nemandi í fjármálaverkfræði: 

„Bátsferðin þar sem við fórum út í Háafell og fengum að kynnast starfseminni stóð klárlega upp úr. Þetta var satt að segja einstök upplifun. Maður hafði í rauninni ekki áttað sig á því hvað sjávarútvegurinn er skemmtilegur og mikilvægur vettvangur og hvað hann býður upp á marga möguleika.“  

Alexander Logi Jónsson, nemandi í fjármálaverkfræði: 

„Það var ótrúlega gaman að sjá róbótana vinna í Arctic Fish. Þau voru líka að útskýra fyrir okkur hvað gengur vel og hvað gengur illa, og hvað er hægt að gera betur gagnalega séð. Við erum náttúrlega gagnadrifin þjóð. Þar eru skýr tækifæri til þess að gera betur og það var gaman að sjá hvaða verkefni maður fær í hendurnar.“

Fannar Snævar Hauksson, nemandi í viðskiptafræði: 

„Maður áttaði sig ekki alveg á því hvað það eru mikið af tækifærum í sjávarútveginum. Maður fékk að sjá almennilega hvað var í boði núna. Þetta er ekki bara fyrir sjóarana.“  

Matthías Jens Ármann, nemandi í viðskiptafræði: 

„Það sem kom mér kannski mest á óvart við þessa ferð var hvað það er mikil eftirspurn af fólki í háskóla og mikil samkeppni þegar kemur að sjávarútvegi.“

Berglind Hrönn Úlfarsdóttir, nemandi í lögfræði: 

„Það sem kom mér mest á óvart hafði að gera með eldislaxana, hvað fyrirtækin eru að reyna að gera þetta á sem hreinasta og besta vegu. Maður vissi svo lítið um hvernig þetta væri.“  

Brynhildur L. Kristjánsdóttir, nemandi í lögfræði: 

„Það var líka geðveikt hvað þau voru hreinskilin með öll vandamálin sem þau glíma við. Þau voru ekki að reyna að fegra þetta neitt. Svo hvernig þetta var hjá Kerecis, hvað þetta er mögnuð starfsemi hjá þeim, sem ég vissi lítið um.“

Hlökkum til að vinna áfram með HR 

Einnig fóru með í ferðina Rúnar Gauti Gunnarsson, forseti SFHR og meistaranemi í fjármálum fyrirtækja, og Eiður Áki Arnarsson, nemandi í hagfræði og fjármálum. 

Samkvæmt Þorsteini Mássyni, sérfræðingi í fiskeldi hjá SFS, ríkti mikil ánægja með heimsókn HR nemanna.

„Það var sannarlega ánægjulegt að fá hópinn frá HR í heimsókn til okkar fyrir vestan, þar sem hópurinn heimsótti meðal annars Háafell, Kerecis og Arctic Fish og kynnti sér starfsemina af eigin raun. Nemendurnir voru áhugasamir og gaman að finna áhugann á því sem er að gerast hér fyrir vestan. 

Við hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi erum þakklát HR fyrir að vilja leggja leið sína vestur og kynna sér það sem er að gerast hér á Vestfjörðum, og hlökkum til að vinna áfram með skólanum að því að tengja atvinnulífið við mannauð framtíðarinnar,“ sagði Þorsteinn. 

1. september 2026
Nýjustu fréttirnar