Taktíkin vann Torgið og Vitann: „Mun nýtast okkur ótrúlega vel í framtíðinni“
Taktíkin, lið skipað laganemunum Berglindi Hrönn Úlfarsdóttur og Brynhildi Lilju Kristjánsdóttur og hagfræðinemunum Matthíasi Jens Ármann og Eiði Áka Arnarssyni, bar sigur úr býtum í Torginu, hugmyndasamkeppni HR og Reita fasteignafélags fyrr í mánuðinum. Taktíkin vann einnig Vitann, hugmyndasamkeppni HR og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi í vor.
Þau Berglind Hrönn, Brynhildur Lilja, Matthías Jens og Eiður Áki eru að vonum ánægð með uppskeruna á árinu. Fyrir sigur í Torginu ferðaðist liðið til Kaupmannahafnar í síðustu viku en þau fóru einnig til Barcelona í vor þegar þau sigruðu í Vitanum. „Það var ótrúlega góð og skemmtileg upplifun að fá tækifæri til að taka þátt í báðum keppnunum. Það sem okkur fannst einna skemmtilegast var að fá tækifæri til að stíga út fyrir okkar hefðbundna námsumhverfi og takast á við eitthvað allt annað en við erum vön í náminu.
Það er ótrúlega lærdómsríkt að fá að kafa ofan í málefni sem maður hefur jafnvel aldrei velt fyrir sér áður, afla sér nýrrar þekkingar og reyna að finna lausnir á raunverulegum áskorunum. Það sem gerir þetta sérstaklega skemmtilegt er að fá að koma að verkefnunum með ferska sýn og nýjar hugmyndir, án þess að vera endilega með mikla þekkingu á viðkomandi sviði fyrir fram. Þannig fær maður tækifæri til að hugsa út fyrir kassann og koma auga á möguleika sem hafa kannski ekki verið skoðaðir áður.
Það er svo líka ótrúlega gefandi að fá að kynna hugmyndirnar sínar fyrir fólki sem hefur mikla reynslu og þekkingu á viðkomandi sviði og finna hversu opið það er fyrir nýjum hugmyndum. Að upplifa að fólk sé virkilega tilbúið að hlusta, sýna áhuga og taka hugmyndunum okkar vel er eitthvað sem stendur sérstaklega upp úr,“ segja liðsmenn Taktíkurinnar.

Þessir ólíku bakgrunnar virðast smella saman
Verkefnið sem Taktíkin leysti af hendi í Torginu sneri að framtíð skrifstofuhúsnæðis og hvernig meginþróun atvinnulífs, samfélags og tækni mun hafa áhrif á það til lengri tíma litið. Í Vitanum snerist verkefnið um að markaðssetja íslenskan lax á spænskum markaði.
Verkefnin voru því ólík og fjölbreytt. Berglind Hrönn, Brynhildur Lilja, Matthías Jens og Eiður Áki létu það síst á sig fá og þakka helst góðri samvinnu, ólíkum bakgrunnum og góðri vináttu fyrir það að hafa staðið uppi sem sigurvegarar í báðum hugmyndasamkeppnum.
„Við vitum svo sem ekki alveg hver lykillinn að sigrunum var, en við teljum að góð samvinna hafi skipt þar mjög miklu máli. Við komum úr tveimur ólíkum deildum innan HR, Berglind og Brynhildur eru í lögfræði en Matthías og Eiður í hagfræði. Þessir ólíku bakgrunnar virðast greinilega smella vel saman og við teljum að það sé einn af okkar helstu styrkleikum.
Við erum líka öll mjög góðir vinir og eyðum miklum tíma saman utan skólans, sem gerir það að verkum að við þekkjum hvert annað mjög vel og eigum auðvelt með að vinna saman. Við getum verið hreinskilin hvert við annað, tekið gagnrýni og rætt ólíkar hugmyndir án þess að það hafi neikvæð áhrif á samstarfið. Okkur finnst mikilvægt að allir geti komið sínum hugmyndum á framfæri, sama hversu óvenjulegar þær kunna að vera í fyrstu.
Við nálgumst verkefnin oft frá mismunandi sjónarhornum og komum með alls konar hugmyndir sem við vinnum svo saman að því að þróa áfram. Það er einmitt í þeirri vinnu, þegar ólíkar hugmyndir og sjónarmið mætast, sem okkur tekst að móta eina heildstæða, sterka og vel útfærða lausn. Við teljum að þessi blanda af ólíkri þekkingu, góðri vináttu og sterkri samvinnu hafi átt stóran þátt í árangrinum,“ segja þau.

Kom á óvart hversu vel okkur var tekið
Berglind Hrönn, Brynhildur Lilja, Matthías Jens og Eiður Áki sammælast um að sigrarnir í Torginu og Vitanum, og ekki síður reynslan, muni koma þeim að góðum notum í framtíðinni.
„Við erum öll sammála um að þátttakan í báðum keppnunum muni nýtast okkur ótrúlega vel í framtíðinni. Við höfum nú þegar fengið tækifæri sem við hefðum líklega aldrei fengið annars. Við höfum fengið að kynna verkefnin okkar fyrir frábæru fólki, kynnast einstaklingum með mikla reynslu úr atvinnulífinu og mynda tengsl sem gætu reynst okkur mjög verðmæt síðar meir.
Í tengslum við Vitann fengum við meðal annars tækifæri til að fara til Ísafjarðar, heimsækja fyrirtæki og kynnast starfsemi þeirra. Það var ótrúlega skemmtileg og lærdómsrík reynsla að fá að sjá starfsemina með eigin augum og hitta fólkið sem starfar í þessum geira. Það sem kom okkur kannski mest á óvart var hversu vel okkur var tekið og hversu mikinn áhuga fólk sýndi bæði okkur og hugmyndunum okkar. Við höfum meira að segja fengið hvatningu frá fólki í atvinnulífinu til að sækja um störf á sviðum sem okkur hefði líklega aldrei dottið í hug að starfa á áður. Það sýnir okkur hversu mörg tækifæri geta skapast þegar maður þorir að prófa eitthvað nýtt.
Okkur langar líka að hvetja aðra nemendur eindregið til að taka þátt í svona keppnum þegar tækifæri gefst. Það þarf alls ekki að hafa mikla þekkingu á viðfangsefninu fyrir fram, enda er stór hluti af upplifuninni einmitt fólginn í því að læra eitthvað alveg nýtt. Fyrir okkur hefur þetta verið miklu meira en bara þátttaka í tveimur keppnum. Þetta hefur verið ótrúlega skemmtilegt ævintýri sem hefur kennt okkur heilmikið, opnað nýjar dyr og gefið okkur reynslu og tengsl sem við munum án efa taka með okkur út í framtíðina. Það verður svo ótrúlega spennandi að sjá hvaða nýju tækifæri skapast í kjölfar sigursins í Torginu, enda hefur reynslan af Vitanum þegar sýnt okkur hversu langt svona þátttaka getur leitt mann,“ segja liðsmenn Taktíkurinnar að lokum.

Dagsetning
Deila