Sjö vikur í að útbúa vélmenni
Nemendur í hátækniverkfræði við Háskólann í Reykjavík tóku nýverið þátt í Mechatronics Great Race, vélmennakeppni sem dr. Joseph Foley, lektor við verkfræðideild HR, skipuleggur.

Nemendur í áfanganum T-411-MECH vörðu sjö vikum í að þróa og betrumbæta hreyfanlegt vélmenni sem getur fylgt marglitum línum eftir sporöskjulaga braut með nokkrum sveigjum. Nemendurnir smíðuðu vélmenni úr íhlutasetti sem þeir fengu afhent, þar sem stuðst er við tölvuna Raspberry Pi Zero W við samsetninguna.
„Við keppum með „roverum“ og þessi „rover“ er eiginlega bara kappakstursbíll sem notar skynjara og tölvu, Raspberry Pi, til þess að fara í kringum brautina,“ sagði Nökkvi Marz Þórleifsson, sigurvegari keppninnar sem fór fram 2. október sl.

Keppt um hraðasta hringinn
Í Mechatronics Great Race keppninni, sem nú var haldin í fjórða sinn, var keppt um hvaða vélmenni gæti farið hraðast í einn hring eftir að ræsingarhliðið opnaðist, án þess að vélmennið færi út fyrir línurnar.

Nökkvi Marz hafnaði sem fyrr segir í fyrsta sæti, Sigurður Steinsson í öðru sæti og Björn Þór Hrafnkelsson í þriðja sæti, allt nemendur í hátækniverkfræði.
Stutt myndskeið um Mechatronics Great Race má sjá hér:
Dagsetning
Deila