Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
28. október 2026

Sæti við borðið: Emma Chilton á Arctic Circle-ráðstefnunni

vernig er hægt að hita upp bæ sem liggur norðarlega á norðurslóðum, þar sem sífreri er í jörðu og leitað er leiða til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis?

Þessari spurningu vildi Emma Chilton, meistaranemi í sjálfbærri orkuverkfræði við Iceland School of Energy (ISE) í Háskólanum í Reykjavík, leita svara við. Rannsókn hennar var hluti af alþjóðlegu samstarfsverkefni sem leiddi hana á Arctic Circle-ráðstefnuna í Reykjavík árið 2026.

Emma er frá New York í Bandaríkjunum og stundaði nám í verkfræði við Cornell-háskóla. Að námi loknu starfaði hún um nokkurra ára skeið sem hönnunarverkfræðingur áður en hún flutti til Íslands til að hefja meistaranám við Háskólann í Reykjavík.

Leitað að sjálfbærum lausnum fyrir húshitun á Svalbarða

Longyearbyen á Svalbarða, þar sem Emma rannsakaði möguleika á að nýta jarðvarmadælur til að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis.

Emma tók þátt í alþjóðlegum rannsóknarhópi framhaldsnema, International Graduate Student Research Cohort, á vegum UArctic, samstarfsnets háskóla og rannsóknastofnana á norðurslóðum. Í verkefninu komu saman sex framhaldsnemar og sex kennarar og sérfræðingar frá fimm háskólum til að rannsaka áskoranir sem samfélög á norðurslóðum standa frammi fyrir.

Rannsókn Emmu beindist að Longyearbyen, afskekktum bæ á Svalbarða í Noregi. Þar kannaði hún hvort hægt væri að nýta jarðvarmadælur til að draga úr þörf samfélagsins fyrir jarðefnaeldsneyti.

Jarðvarmadælur nýta varma úr jörðu til að hita byggingar, en notkun þeirra við aðstæður á norðurslóðum getur verið flókin. Sífreri, kostnaður við boranir og núverandi hitaveituinnviðir hafa allir áhrif á hvaða lausnir koma til greina.

Niðurstöður rannsóknarinnar bentu til þess að jarðvarmadælur gætu átt þátt í að draga úr notkun jarðefnaeldsneytis, einkum með því að styðja við núverandi hitakerfi fremur en að koma alfarið í stað þeirra.

Frá rannsóknum til samtals og samstarfs

Harpa í Reykjavík, þar sem Arctic Circle-ráðstefnan fór fram árið 2026.

Frá rannsóknum til samtals og samstarfs

Verkefnið snerist ekki eingöngu um að skrifa rannsóknargreinar. Um nokkurra mánaða skeið unnu Emma og samnemendur hennar saman þvert á landamæri og fræðigreinar og kynntu að lokum rannsóknir sínar á Arctic Circle-ráðstefnunni.

Hópurinn skipulagði einnig og stýrði vinnustofunni Student Connect, þar sem þátttakendur tókust á við ímyndað námuvinnsluverkefni í samfélagi á norðurslóðum. Verkefnið hvatti nemendur til að skoða ólíka umhverfislega, efnahagslega og samfélagslega hagsmuni og ræða hvernig taka ætti ákvarðanir þegar þessir hagsmunir rekast á.

„Það var frábært tækifæri að vinna með nemendum úr ólíkum fræðigreinum og heimshlutum og skiptast á hugmyndum og sjónarmiðum,“ segir Emma.

Að hennar mati sýndi vinnustofan hversu mikilvægt það er að vísindafólk geti miðlað rannsóknum sínum á skýran hátt og tekið mið af sjónarmiðum fólks utan eigin sérsviðs.

„Að skipuleggja og stýra vinnustofunni undirstrikaði mikilvægi vísindamiðlunar og hvernig innihaldsríkar umræður þvert á fræðigreinar geta hjálpað til við að brúa bilið milli rannsókna og hagnýtra aðgerða.“

Það er ekki nóg að fá að tala – það þarf líka að hlusta

Þátttakendur í Student Connect-vinnustofunni, þar sem nemendur ræddu ólíka hagsmuni sem tengjast þróun og uppbyggingu á norðurslóðum.

Eitt það mikilvægasta sem Emma tók með sér af ráðstefnunni var samtalið við aðra unga rannsakendur.

Þar ræddu þau spurningu sem nær langt út fyrir orkurannsóknir: Hvað gerist þegar ungu fólki er boðið að taka þátt í mikilvægum umræðum, en sjónarmið þess hafa lítil áhrif á þær ákvarðanir sem teknar eru?

„Það sem stóð ef til vill mest upp úr var að ég áttaði mig betur á þeirri stöðu sem við höfum sem ungt fagfólk og rannsakendur í upphafi starfsferils,“ segir Emma.

Þátttakan gaf Emmu tækifæri til að kynna eigin rannsóknir, kynnast fólki sem vinnur að ólíkum viðfangsefnum á norðurslóðum og velta fyrir sér hvernig yngri kynslóðir geti haft raunveruleg áhrif á ákvarðanir um framtíð svæðisins.

Reynsla hennar minnir á að verkfræði snýst ekki eingöngu um að finna tæknilegar lausnir. Hún snýst líka um að skilja fólkið, samfélögin og ákvarðanirnar sem ráða því hvort þessar lausnir geti skilað árangri.

28. október 2026
Nýjustu fréttirnar