15. október 2026
Opið fyrir umsóknir í meistaranám sem hefst í janúar
Háskólinn í Reykjavík hefur opnað fyrir umsóknir í meistaranám í lagadeild, verkfræðideild og íþróttafræðideild sem hefst á vorönn, í janúar 2027. Umsóknarfrestur er til 5. desember og sótt er um hér.
Það að hefja meistaranám á vorönn er möguleiki sem getur hentað mörgum, til dæmis þeim sem eru að ljúka grunnnámi nú um áramótin eða vilja taka næsta skref á ferlinum án þess að bíða til hausts.
Hægt er að sækja um meistaranámsleiðir deildanna þriggja með upphaf í janúar, að undanskildum Advanced MPM, orkuverkfræði, orkuvísindum og íþróttafræði og stjórnun, sem einungis taka inn nemendur að hausti.
Eftirfarandi námsleiðir eru í boði:
- Lagadeild: Meistaranám í lögfræði (ML) er 120 ECTS og veitir gráðu sem er skilyrði fyrir lögmannsréttindum og dómarastörfum. Nemendur velja sér áherslur, meðal annars á sviði alþjóðaréttar og alþjóðlegra viðskipta.
- Verkfræðideild: Meistaranám (MSc) í fjármálaverkfræði, hátækniverkfræði, heilbrigðisverkfræði, raforkuverkfræði, rekstrarverkfræði og vélaverkfræði. Námið byggir á raunhæfum verkefnum og nánu samstarfi við atvinnulífið.
- Íþróttafræðideild: Meistaranám í íþróttavísindum (MSc) með sérhæfingu í þjálfun, frammistöðugreiningu eða íþróttasálfræði, og í íþróttavísindum og kennslu (MEd).
Af hverju meistaranám í HR?
- Nám sem tengist atvinnulífinu: Kennslan byggir á raunhæfum verkefnum og samstarfi við fyrirtæki og stofnanir. Einnig eru fjölmörg tækifæri til að fara í starfsnám og öðlast þannig dýrmæta reynslu.
- Litlir hópar og persónuleg kennsla: Í meistaranámi í lögfræði eru til dæmis að hámarki 30 nemendur í hverjum tíma.
- Alþjóðlegt umhverfi: Nemendur og kennarar koma víða að og fjölmörg tækifæri eru til skiptináms.
- Allt á einum stað: Öll starfsemi háskólans er undir einu þaki í Nauthólsvík.
Umsóknarfrestur er til 5. desember og upplýsingar um hvernig sótt er um má nálgast hér. Nám hefst í janúar 2027.
Dagsetning
15. október 2026
Deila