Kærleikurinn allsráðandi á opnunarviðburði Guls september
Opnunarviðburður Guls september fór fram í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík þann 1. september sl. Viðburðurinn markaði upphaf átaks sem fer fram í september ár hvert og er tileinkað vitundarvakningu um geðrækt og sjálfsvígsforvarnir.
Við þetta tilefni var nýtt neyðarnúmer Píeta samtakanna 1799, virkjað. Alma Möller, heilbrigðisráðherra og fyrrverandi landlæknir, hringdi fyrsta símtalið í númerið. Eva Skarpaas, verkefnastjóri Guls september hjá Embætti landlæknis, stýrði dagskrá.

Fyrst í pontu var dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, aðstoðarrektor náms, nemenda og sjálfbærni við HR. Hún lagði áherslu á mikilvægi þess að skapa umhverfi þar sem fólk upplifir öryggi og stuðning í námi, starfi og samfélagi.

„Málefnin sem Gulur september setur á dagskrá eru mér mjög kær, bæði sem aðstoðarrektor nemenda en einnig sem prófessor í sálfræði, þar sem ég hef unnið að rannsóknum á þessu sviði í fjölda ára ásamt samstarfsfólki mínu við HR og víðar. Þessar rannsóknir hafa ítrekað sýnt að einn af lykilþáttum öflugrar geðheilsu og sjálfsvígsforvarna er að byggja upp stuðningsríkt félagslegt umhverfi í lífi fólks. Þetta gerum við með því að efla verndandi þætti í umhverfi ungs fólks og minnka áhættuþætti,“ sagði Bryndís meðal annars í ávarpi sínu.

Þá flutti Alma D. Möller heilbrigðisráðherra tölu þar sem hún fjallaði um mikilvægi forvarna, snemmtækrar íhlutunar og opinnar umræðu um geðheilsu. Hún hvatti landsmenn til að sýna hvert öðru umhyggju og minnti á að stuðningur og samtal geti skipt sköpum fyrir fólk sem glímir við erfiðar aðstæður.
„Í septembermánuði ár hvert minnum við hvert annað á mikilvægi þess að rjúfa þögnina sem oft ríkir milli okkar um líðan og geðheilsu. Samkenndin - það að láta sig náungann varða - er gríðarlega öflugt verkfæri í baráttunni við sjálfsvíg. Þessi mikli kraftur sem fólginn er í samúðinni endurspeglast í slagorði Guls september: Er allt í gulu? Í september erum við hvött til að taka samtalið, til að vera vakandi fyrir vanlíðan annarra og rétta þeim hjálparhönd sem þarfnast stuðnings, ráðgjafar og lausna. Í september minnum við hvert annað á að samtal getur sannarlega bjargað lífi,“ sagði Alma.

Forseti SFHR, Rúnar Gauti Gunnarsson, tók einnig til máls og sagði mikilvægt að námsumhverfi styddi við andlega vellíðan nemenda og að ungt fólk hefði greiðan aðgang að stuðningi þegar á þarf að halda.

Einn af hápunktum dagskrárinnar var afhending viðurkenninga Lífsbrúar til einstaklings og liðsheildar fyrir mikilvægt framlag til sjálfsvígsforvarna á Íslandi. Með viðurkenningunum er vakin athygli á því öfluga starfi sem unnið er víða í samfélaginu til að efla geðheilbrigði og styðja fólk á erfiðum tímum.
Að þessu sinni fékk Hugarafl viðurkenningu liðsheildar og geðlæknirinn Högni Óskarsson einstaklingsviðurkenninguna.


Leikkonan Edda Björgvinsdóttir flutti áhrifamikla hugvekju sem lét engan ósnortinn. Edda deildi því með gestum að þegar hún missti lífsförunaut sinn í sjálfsvígi hafi opnast fyrir henni nýr tilfinningaheimur sem einkenndist af afar flóknum og margbreytilegum tilfinningum. Í þessum stormi sé ómetanlegt að geta deilt með þeim sem hafa gengið í gegnum sömu erfiðu lífsreynsluna. Edda hefur sótt styrk í hópastarf bæði hjá Píeta og Sorgarmiðstöðinni. „Það er einstök heilun fólgin í því það að veita og þiggja stuðning í hópi einstaklinga sem þekkja á eigin skinni lífið eftir svona missi,“ sagði Edda sem sjálf hefur leitt sorgarhópa á jafningjagrundvelli eftir að hún lauk námi í sálgæslu.



Að síðustu fluttu KASI og Ísak lagið sitt „Tilfinningar gleymast" sem samið var í minningu vinar sem lést í sjálfsvígi árið 2021.


Að formlegri dagskrá lokinni gafst gestum kostur á að rölta um markaðstorg samstarfs- og skipulagsaðila Guls september í Sólinni. Þar kynntu félagasamtök, stofnanir og verkefni það fjölbreytta starf sem unnið er á sviði geðræktar og sjálfsvígsforvarna hér á landi.

Nemendur í HR tóku saman höndum og fylltu skólann af jákvæðum skilaboðum á gulum „post it“ miðum fyrir viðburðinn. Gjörningurinn vakti mikla athygli og nemendur, starfsfólk og aðrir gestir HR fengu hlýtt í hjartað við að lesa falleg og hvetjandi orð sem þau tóku með sér inn í daginn. Lífsbrú hafði frumkvæði að því að koma af stað átaki þar sem fólk er hvatt til þess að senda falleg skilaboð til náungans.
Skipuleggjendur Guls september vonast til að átakið verði áfram tákn um kærleika, aðgát og umhyggju og hvetji fólk til að eiga opinská samtöl um geðheilsu og líðan. Fjölbreyttir viðburðir munu eiga sér stað undir merkjum Guls september, dagskrá má sjá hérna.









Bergið Headspace er lágþröskulda stuðnings- og ráðgjafasetur fyrir ungt fólk á aldrinum 12 til 25 ára. Þar geta ungmenni fengið ókeypis ráðgjöf og stuðning án tilvísunar, hvort sem um er að ræða geðræna líðan, félagslegar áskoranir eða önnur málefni sem hafa áhrif á daglegt líf. Markmið Bergsins er að efla geðheilbrigði, vellíðan og virkni ungs fólks í samfélaginu.




Dagsetning
Deila