Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
3. september 2026

Goldin nóbelsverðlaunahafi: „Ef aðstæður væru hentugri myndi fæðingartíðni aukast“

Claudia Goldin, nóbelsverðlaunahafi í hagfræði 2023, hélt erindi á ráðstefnunni Hagfræði og samfélagið, sem viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík stóð fyrir í síðustu viku í tilefni af því að áratugur er liðinn frá því að kennsla til BSc gráðu í hagfræði hófst við skólann.

Í erindi sínu fjallaði Goldin um aukið sjálfstæði kvenna og minnkandi fæðingartíðni. Þar hélt hún því fram að minnkandi fæðingartíðni snúist í grunninn ekki um að konur hafi öðlast of mikið sjálfstæði.

Að mati Goldin er lykilatriðið á bak við minnkandi fæðingartíðni að sjálfstæði kvenna hafi þróast með hraðari hætti en hlutverk karla hvað varðar að vinnustaðir, heimili og stofnanir, samfélagið allt, nái að laga sig að breyttum veruleika. Með þessu hafi skapast ójafnvægi sem hefur gert samspil starfsferils og fjölskyldulífs erfiðara en það þyrfti að vera.

Claudia Goldin, Henry Lee prófessor í hagfræði við Harvard háskóla og Nóbelsverðlaunahafi í hagfræði 2023.

Gjá getur myndast

Vandamálið sem er fólgið í minnkandi fæðingartíðni sé því ekki bundið við sjálfstæði kvenna, heldur gjána sem getur myndast á milli aukinna möguleika kvenna og þeim skuldbindingum sem þær vænta frá mökum sínum.

„Þarna skapast ójafnvægi milli þess sem konur geta áorkað með auknu sjálfstæði og raunhæfum skuldbindingum karla. Ef aðstæður væru hentugri myndi fæðingartíðni aukast,“ sagði Goldin meðal annars og kjarnaði erindi sitt með tveimur lykilspurningum:

„Af hverju ætti ég að leggja mig fram við að eiga starfsframa ef ég fæ ekki notið ávinningsins af honum eftir að ég eignast barn? Og af hverju ætti ég að eignast barn ef það hefur í för með sér að ég þurfi að fórna framtíðartekjum mínum og fjárhagslegu öryggi?“

Samfélagsleg viðmið þurfa að breytast

Í lok erindis síns lagði Goldin til lausn sem er síður en svo fólgin í því að minnka þurfi sjálfstæði kvenna. Þvert á móti þurfi að samræma aðra þætti samfélagsins við þá þróun sem hefur átt sér stað þegar kemur að auknu sjálfstæði og minnkandi fæðingartíðni.

Til þess þurfi feður/eiginmenn að leggja til meiri tíma og fjármuni við uppeldi barna og makar skipti í meiri mæli með sér umönnun barna og heimilisstörfum. Einnig þurfi að bæta framboð á barnagæslu og að vinnustaðir geri ekki jafn íþyngjandi kröfur um tíma starfsfólks með tilliti til fjölskyldulífs.

Samfélagsleg viðmið þurfi þá að breytast þannig að þátttaka karla í fjölskyldulífi sé metin að verðleikum í stað þess að samfélagið líti neikvætt á slíka þátttöku.

Upptöku af ráðstefnunni má sjá hér:

3. september 2026
Nýjustu fréttirnar