Heimur vísindanna
Námið
Rannsóknir
HR
Heimur vísindanna
11. september 2026

Dr. Patrick Weiss hlýtur framgang í stöðu dósents 

Dr. Patrick Weiss hefur hlotið framgang í stöðu dósents við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík. Matsnefnd komst einróma að þeirri niðurstöðu að framlag hans til háskólasamfélagsins og víðar væri framúrskarandi. 

Í matsnefnd sátu dr. Marina Candi, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild HR og formaður nefndar, dr. Valdonė Darškuvienė, prófessor við ISM University of Management and Economics í Litáen og dr. Hersir Sigurgeirsson, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands.

Patrick Weiss hefur starfað sem lektor við viðskipta- og hagfræðideild HR frá því í janúar 2023. Í umsögn matsnefndar um framgang hans í starfi segir: 

„Starfsferill dr. Patricks Weiss innan háskólasamfélagsins hefur til þessa verið afar farsæll og lofar góðu. Hann hefur þegar vakið eftirtekt innan háskólasamfélagsins og víðar vegna þess sem hann hefur fram að færa. 

Af þeim sökum leggur matsnefndin til að hann verði skipaður dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík, enda uppfyllir hann og fer í einhverjum tilfellum fram úr þeim viðmiðum sem Háskólinn í Reykjavík setur varðandi kennslu, rannsóknir og akademískt starf.“ 

11. september 2026
Nýjustu fréttirnar