Dr. Aldís G. Sigurðardóttir hlýtur framgang í stöðu dósents
Dr. Aldís G. Sigurðardóttir hefur hlotið framgang í stöðu dósents við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík. Matsnefnd komst einróma að þeirri niðurstöðu að veita Aldísi framgang í starfi.
Í matsnefnd sátu dr. Friðrik Már Baldursson, prófessor við viðskipta- og hagfræðideild HR og formaður nefndar, dr. Lára Jóhannsdóttir, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands og dr. Andrea Caputo, prófessor í stefnumótun og samningatækni við hagfræði- og stjórnunardeild Háskólans í Trento á Ítalíu.
Aldís hefur starfað sem lektor við viðskipta- og hagfræðideild HR frá 2022. Í umsögn matsnefndar um framgang hennar í starfi segir:
„Dr. Aldís G. Sigurðardóttir lauk doktorsprófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2018 og hefur verið aðstoðarprófessor við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans í Reykjavík frá 2022. Áður gegndi hún sömu stöðu við Háskólann í Twente í Hollandi.
Rannsóknarsvið hennar er samningatækni og samningaviðræður. Birtar rannsóknir hennar spanna allt frá samningaaðferðum í viðskiptum milli fyrirtækja til stefnumiðaðrar aðlögunarhæfni og ákvarðanatöku í árásum þar sem krafist er lausnargjalds. Hún hefur fengið rannsóknir sínar birtar í alþjóðlegum fræðiritum og situr í ritstjórn Conflict Resolution Quarterly.
Hún hefur kennt á grunn- og meistaranámsstigi, kennt stjórnendum og leiðbeint nemendum við ritun lokaverkefna á öllum námsstigum. Það er mat nefndarinnar að dr. Aldís G. Sigurðardóttir uppfylli skilyrði Háskólans í Reykjavík fyrir titilinn dósent og leggur til framgang hennar í starfi.“
Dagsetning
Deila